Á
sýningunni "Hrynjandin er dansfífl"
teflir Bryndís Hrönn saman myndbandsverki,
texta, ljósmynd og tveimur skúlptúrum
úr endurunnu efni.
Bryndís veltir fyrir sér spurningum um hvort
leiðin inní eilífðina/tilveruna
utan við skilningssviðið, sé eins og
eldflaug að taka sig á loft, líkt og
hjartað berst í brjósti manns áður
en hann yfirgefur líkama sinn. Hvort endurtekningin
(þráhyggjan) sé eins konar forspil,
undirbúningur að upphafi loftkenndrar tilveru
eða hugsunar. „Hrynjandin er dansfífl“
vísar til þess hvernig mannfólk dansar
við tilveruna, hrynjandinnar í samspili hins
óviðráðanlega og tilviljanakennda
og manneskjunnar sem bregst við því.
Bryndís Hrönn lauk BFA úr fjöltæknideild
Listaháskóla Íslands árið
2002 og
MFA árið 2006 frá Akademie der Bildenden
Kunste í Vínarborg.
viðtal
við Bryndísi Hrönn
|